- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Frístundaheimili grunnskólanna (Sumarfrístund), fyrir tilvonandi 1. bekkinga (börn fædd 2020), verða opin frá 11. ágúst til skólasetningar. Markmiðin með þessari opnun eru m.a. að brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu nemenda, að aðlögun nýrra leikskólabarna geti hafist sem fyrst að hausti og að aðlaga tilvonandi 1. bekkinga í grunnskólann sinn.
Skráning er hafin og fer fram í gegnum www.mittreykjanes.is eða http://www.sumar.vala.is og er skráning fyrir þetta tímabil ótengd skráningu fyrir frístundaheimilin eftir að skólastarf hefst. Gert er ráð fyrir því að foreldrar séu búnir að skrá börnin sín fyrir 29. maí.
Opnunartíminn verður frá 9:00 – 15:00. Börnin fá hádegismat og síðdegisnesti.
*17. ágúst verða frístundaheimilin opin frá 11:00 – 15:00 þar sem starfsmannafundur og fræðsla fyrir starfsfólk er í upphafi dags.
ATH! Foreldrar með systkini á leikskólum eða hjá dagforeldrum eru beðnir um að setja inn upplýsingar um systkin vegna fjölskylduafsláttar í reitinn annað.
Gjaldskrá:
Gjaldskrá fyrir tímabilið 11. – 24. ágúst 2026
Frístund í 10 daga frá kl. 9:00 – 15:00 - 24.801 kr.
*Opið frá 10:00-15:00 15. ágúst
Fjölskylduafsláttur (eingöngu af tímagjaldi – 16.615 kr.) gildir milli skólastiga, þ.e. dagforeldra, leikskóla og frístundaheimila.