Stöðu- og framvinduprófum Matsferils lokið í Stapaskóla

Nemendur í 4. til 10. bekk í Stapaskóla luku nýverið við stöðu- og framvindupróf Matsferils í lesskilningi og stærðfræði. Prófin fóru fram á síðustu þremur vikum og voru leyst á iPad-tölvur nemenda. Allt ferlið gekk einstaklega vel og stóðu nemendur ásamt öðrum þeim sem að prófunum komu sig með mikilli prýði.

Þótt lögboðið væri að leggja prófin fyrir nemendur í 4., 6. og 9. bekk, ákváðu grunnskólar Reykjanesbæjar að láta alla nemendur í 4. til 10. bekk taka þau. Þetta var gert svo hægt væri að nýta niðurstöðurnar til að skipuleggja kennslu enn betur í samræmi við stöðu hvers og eins auk þess sem niðurstöðurnar munu nýtast við mat á árangri kennslunnar.