Sögukeppni í 2. bekk

Nemendur í 2. bekk hafa verið í skriftar- og ritunarátaki síðastliðnar vikur. Átakinu lauk með sögukeppni innan árgangsins þar sem hver nemandi skrifaði og samdi sína eigin sögu. Frábært tækifæri fyrir nemendur að nýta þá tækni sem þau höfðu tileinkað sér síðastliðnar vikur.

Nemendur fengu kynningu á verkefninu og varð strax mikill spenningur fyrir því. Kennarar kynntu þau verðlaun sem í boði voru, svo sem verðlaun fyrir bestu söguna, mestu framfarirnar og fyrir vandaða skrift.

Í dag voru úrslit tilkynnt og var Ævar vísindamaður sérstakur gestadómari. Hann tók að sér það vandasama hlutverk að velja úr frábærum sögum nemenda. Til að gera stundina enn eftirminnilegri sendi hann nemendum myndbandskveðju þar sem hann tilkynnti sigurvegarana. Nemendur fylgdust spenntir með tilkynningunni og fögnuðu velgengni bekkjarfélaga sinna. Við erum afar stolt af öllum þátttakendum og þeirri frábæru vinnu sem þau lögðu í verkefnið.

Innilega til hamingju allir nemendur í 2. bekk!