- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Veðurstofa Íslands hefur varað við slæmu veðri víða um land á morgun, miðvikudaginn 14. október. Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að fylgjast vel með veðurspám og viðvörunum og gera ráðstafanir eftir aðstæðum.
Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að meta hvort þörf sé á að fylgja börnum í skólann og sækja þau að skóladegi loknum. Mikilvægt er að taka mið af veðri og aðstæðum hverju sinni og hafa öryggi barnanna ávallt í fyrirrúmi.
Þegar slæmu veðri er spáð á Suðurnesjum fylgjast lögregla og almannavarnir með þróun mála í samstarfi við skóla á svæðinu og gefa út tilkynningar ef þörf krefur.
Foreldrar og forráðamenn leggja sjálfir mat á hvort óhætt sé fyrir börn þeirra að sækja skóla, óháð því hvort sérstakar tilkynningar hafi borist frá yfirvöldum. Telji foreldrar að veðuraðstæður komi í veg fyrir örugga skólaför skal tilkynna forföll til skólans. Slík forföll teljast eðlileg við þessar aðstæður.
Stapaskóli verður opinn samkvæmt venju og þar er öruggt skjól fyrir nemendur.
Við hvetjum öll til að fylgjast vel með þróun veðurs og fara varlega.