Skólasetning haldin hátíðlega

Þriðjudaginn 23. ágúst mættu nemendur í 1. - 10. bekk prúðbúnir á skólasetningu Stapaskóla. Nemendur mættu á sal og hlustuðu á ávarp Gróu Axelsdóttur skólastjóra. Gróa bauð alla hjartanlega velkomna og hafði sérstakt orð á því að nú værum við að leggja af stað í nýtt skólaár án takmarkana, sem er dásamleg tilfinning. Í vetur munu starfa við grunnskólastig um 370 nemendur og 60 starfsmenn, á leikskólastigi eru 85 nemendur og 20 starfsmenn. 

Helstu áherslur kennslufræði Stapaskóla eru samþætting námsgreina – heildstæð verkefni, áhugasviðsverkefni, fjölbreytt vinnuumhverfi og GLEÐI. Við viljum vinna verkefni frekar en að vinna í vinnubók, verkefni sem við getum yfirfært í önnur verkefni út fyrir skólastarfið og að nemendur hafi áhrif á hvernig og hvað þeir eru að læra. Hvert er þitt áhugasvið? Hvað langar þig til að vita meira um? Hvernig geri ég það? Hvert leita ég? Þetta eru allt spurningar og ferli sem kennarar munu leiða nemendur í gegnum skólastarfið í vetur.

Gróa fór yfir mikilvægi vináttu og samveru með fjölskyldu.

Starfsfólk Stapaskóla fer af stað með mikilli tilhlökkun inn í nýtt skólaár með GLEÐI - VIRÐINGU - SAMVINNU - VINÁTTU að leiðarljósi.