- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Nemendur í 3. og 6. bekk tóku þátt í skemmtilegum skógræktarviðburði á Njarðvíkurheiði þar sem þau fengu tækifæri til að gróðursetja tré og taka þátt í uppbyggingu svæðisins.
Dagurinn var bæði fræðandi og skemmtilegur. Nemendur fengu fræðslu um skógrækt, náttúruvernd og mikilvægi þess að rækta gróður til framtíðar. Það var þó ekki síður gaman að fá að gróðursetja tréin og taka þannig virkan þátt í verkefninu.
Veðrið lék sannarlega við okkur og fengum við frábært veður þennan dag. Nemendur voru duglegir og áhugasamir og nutu þess að vera úti í náttúrunni með bekkjarfélögum sínum.
Að heimsókn lokinni fengu allir nemendur gjafapoka með minningu frá deginum, upplýsingum um verkefnið og anemónuhnýði til gróðursetningar.
Hnýðin er best að setja niður að vori og fá börnin því tækifæri til að taka verkefnið með sér heim og gróðursetja þau þar. Þannig fær verkefnið að lifa áfram eftir að trjáplöntunardeginum lýkur og börnin geta fylgst með gróðrinum vaxa og dafna heima hjá sér.
Við þökkum atNorth, Crusoe og Reykjanesbæ kærlega fyrir frábært framtak og fyrir að gefa nemendum okkar þetta skemmtilega tækifæri til að kynnast skógrækt og náttúruvernd í verki og leggja sitt af mörkum til framtíðar svæðisins.
Það var sannarlega gaman að njóta úti í náttúrunni og við hlökkum til að fylgjast með trjánum vaxa og dafna!
Fleiri myndir hér