Nýr snjallsjónauki í Stapaskóla

Stapaskóli hefur fengið að gjöf nýjan snjallsjónauka sem mun nýtast í fjölbreyttu og spennandi námi um náttúru, vísindi og undur alheimsins.

Sjónaukinn er hluti af verkefni Reykjanes jarðvangs þar sem ellefu snjallsjónaukar eru afhentir grunnskólum innan jarðvangsins. Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari, hefur komið að verkefninu og veitt ráðgjöf við val á sjónaukunum.

Sjónaukarnir bjóða upp á fjölbreytta möguleika í kennslu. Með þeim er hægt að skoða himingeiminn, meðal annars sólina, tunglið og reikistjörnur, en einnig fylgjast með fuglum, dýrum og öðru áhugaverðu í náttúrunni. Þá er hægt að taka bæði ljósmyndir og myndskeið sem nýta má í skapandi og lifandi vísindafræðslu.

Verkefnið er að frumkvæði Reykjanes jarðvangs og er styrkt af Kadeco og atNorth. Einnig er gert ráð fyrir námskeiðum fyrir kennara um notkun sjónaukanna og miðlun námsefnis sem styður við nýtingu þeirra í skólastarfi.

Við í Stapaskóla erum afar þakklát fyrir þessa veglegu gjöf og hlökkum til að nýta sjónaukann með nemendum. Hann skapar spennandi tækifæri til að vekja forvitni, efla áhuga á náttúru og vísindum og færa undur alheimsins nær nemendum okkar.