- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Á þessu skólaári tekur Stapaskóli í notkun Námfús, nýtt námsumsjónarkerfi sem tekur við af InfoMentor. Námfús verður sameiginlegur vettvangur fyrir upplýsingar um skólastarfið og samskipti milli heimila og skóla.
Innleiðing nýs kerfis tekur tíma og fyrstu vikur skólaársins fara að hluta til í að aðlaga vinnulag, prófa virkni og þróa notkun kerfisins. Ekki verður því allt efni eða allar upplýsingar komnar inn í kerfið strax og sumir þættir munu byggjast upp í áföngum eftir því sem líður á skólaárið.
Þriðjudaginn 25. ágúst verða sendar upplýsingar um innskráningu í Námfús til forráðamanna. Mikilvægt er að fylgjast vel með tölvupósti.
Þar sem um fjöldasendingu er að ræða getur pósturinn í einhverjum tilfellum lent í ruslpósti eða öðrum síum tölvupóstsforrita. Við hvetjum því forráðamenn til að kanna þær möppur ef pósturinn berst ekki í aðalpósthólfið.
Markmið Námfúsar er að auðvelda nemendum og forráðamönnum að nálgast helstu upplýsingar um skólastarfið á einum stað. Í kerfinu verður meðal annars hægt að nálgast:
Námfús auðveldar þannig nemendum að fylgjast með námi sínu og því sem fram undan er og gefur forráðamönnum góða yfirsýn yfir skólagöngu barnsins.
Á meðan innleiðing stendur yfir getur virkni og magn upplýsinga verið mismunandi eftir árgöngum og námsgreinum. Upplýsingar um nám og námsframvindu munu einnig byggjast upp eftir því sem kennarar kynnast kerfinu betur og notkun þess festist í sessi.
Námfús er aðgengilegt bæði í vafra og í appi fyrir snjalltæki.
Við hlökkum til að taka Námfús í notkun með nemendum og forráðamönnum. Við biðjum um þolinmæði á meðan innleiðingin stendur yfir og þökkum fyrir gott samstarf við að koma nýju kerfi í fulla virkni.