- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Dagana 5. og 8. júní verða haldnir þemadagar í Stapaskóla undir yfirskriftinni Menningarmót. Verkefnið byggir á hugmyndafræði Menningarmóta þar sem nemendur fá tækifæri til að kynna sína persónulegu menningu, áhugamál, reynslu og það sem skiptir þau mestu máli. Markmiðið er meðal annars að efla sjálfsþekkingu, virðingu fyrir fjölbreytileika og skapa vettvang fyrir nemendur til að segja frá sjálfum sér og æfa sig í samskiptum og kynningum. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér.
Þriðjudaginn 9. júní verður síðan haldin þemahátíð þar sem nemendur sýna afrakstur vinnu sinnar frá kl. 9:00–10:30. Við bjóðum foreldra, forráðamenn og aðra gesti hjartanlega velkomna í heimsókn á Menningarmót Stapaskóla.
Við hvetjum gesti til að skoða verkefni sem flestra nemenda og eiga samtal við þau um vinnu þeirra, áhugasvið og það sem þau hafa valið að deila með öðrum.
Að sýningunni lokinni verða skemmtiatriði og síðan verða grillaðar pylsur fyrir nemendur.
Nemendur í 9. bekk verða einnig með kökubasar til styrktar ferðasjóði fyrir 10. bekkjarferð sína til Danmerkur. Við hvetjum gesti til að koma við hjá þeim og styrkja verkefnið með því að kaupa kræsingar.
Skóladeginum lýkur að lokinni dagskrá, um kl. 11:00, nema fyrir þá nemendur sem eru skráðir í Frístund.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga saman skemmtilega stund á Menningarmóti Stapaskóla.