- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Föstudaginn 15. maí frá kl. 08:30 til 12:30 fer fram árlegt málþing Stapaskóla í sal skólans. Þar kynna teymi skólans fjölbreytt og metnaðarfull verkefni sem unnin hafa verið á skólaárinu.
Á málþinginu gefst einstakt tækifæri til að fá innsýn í daglegt skólastarf, allt frá leikskólastigi upp á unglingastig. Fjallað verður um fjölbreytt viðfangsefni, meðal annars læsi og skapandi vinnu, samþættingu námsgreina, hreyfingu og vellíðan, auk nýrra leiða í kennslu og samstarfi nemenda.
Málþingið er opið öllum sem hafa áhuga á skólastarfi, foreldrum, samstarfsaðilum og öðrum gestum, og er kjörinn vettvangur til að kynnast þeirri öflugu og framsæknu vinnu sem fer fram í Stapaskóla.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og deila með ykkur innsýn í starfið.
Dagskrá málþings

