Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Stapaskóla

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Stapaskóla með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá þar sem lestur, söngur, sköpun og gleði voru í fyrirrúmi. Nemendur á öllum aldri tóku þátt í hátíðarhöldunum og fengu tækifæri til að njóta íslenskrar tungu á fjölbreyttan hátt.

Yngstu nemendur skólans, á Óskasteini og í 1. og 2. bekk, heimsóttu bókasafnið í litlum hópum. Þar tóku þær Þórey og Anna, starfsmenn bókasafnsins, á móti nemendum og lásu fyrir þá. Stundirnar voru notalegar og skemmtilegar og nutu nemendur þess að hlusta á upplesturinn.

Nemendur í 3.–6. bekk komu saman í Tröllastiga þar sem boðið var upp á glæsilega söngdagskrá. Nemendur í 3. bekk riðu á vaðið með laginu Ég segi stopp, 4. bekkur flutti Kæri vinur, 5. bekkur söng Öll í sama liði og að lokum fluttu nemendur í 6. bekk lagið Vegbúi. Sönggleðin var í fyrirrúmi og stóðu nemendur sig með mikilli prýði. Að söngatriðunum loknum fengu nemendur að horfa á tónlistarmyndband sem nemendur í 8. bekk útbjuggu í tengslum við verkefnið Málæði.

Nemendur í 7.–10. bekk komu einnig saman til hátíðlegrar og skemmtilegrar dagskrár. Samveran hófst á upplestri þeirra Heiðu Lindar og Maríu Dísar, sigurvegara Stóru upplestrarkeppninnar 2026. Þær fluttu ljóð af mikilli innlifun og að upplestri loknum var upplestrarkeflið afhent nemendum í 7. bekk, sem nú hefja undirbúning fyrir Stóru upplestrarkeppnina.

Þá var komið að einu af skemmtilegustu atriðum dagsins, spurningakeppni milli nemenda í 10. bekk og kennara skólans. Fyrir hönd nemenda kepptu þau Hildur, Mikael og Leví en lið starfsfólks skipuðu þeir Adam, Ottó og Hrútur. Birna Ósk var spyrill og Aðalheiður Ósk sá um dómgæslu.

Keppt var í hraðaspurningum, almennum spurningum, tónlistargetraun og svokallaðri fimmu, þar sem keppendur þurftu að sýna bæði þekkingu og útsjónarsemi. Að lokum voru það kennararnir sem stóðu uppi sem sigurvegarar og höfðu þar með betur í þessari skemmtilegu viðureign við nemendur.

Dagurinn var sannkölluð hátíð íslenskrar tungu og skemmtileg áminning um hversu mikilvægt það er að rækta tungumálið okkar og njóta þess saman.

Við þökkum öllum nemendum og starfsfólki fyrir frábæra þátttöku og skemmtilega samveru!❤️