Dýrin í Hálsaskógi - Sýning hjá leiklistarvali Stapaskóla

Leiklistarval Stapaskóla veturinn 2025 - 2026 setti upp dýrin í Hálsaskógi á vordögum. 

Þetta er annað árið sem leiklistarval Stapaskóla setur upp söngleik og býður skólasamfélaginu að koma og horfa á sýningar hjá þeim. Í vetur valdi hópurinn að setja upp Dýrin í Hálsaskógi. Nemendur í leikhópnum hafa unnið hörðum við æfingar og nemendur í leikmyndavalinu hafa hannað og búið til sviðsmyndina. Leikritið var frumsýnt föstudaginn 24. apríl og sýndu nemendur í heildina 4 sýningar sem voru vel sóttar.

Allir nemendur sem koma að sýningunni eiga hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu, leikarar, leikmyndafólk og sviðsmenn sem mættu aukalega á æfingar og sýningar til að stýra miðasölu, sjoppu og halda utan um alla leikmuni á meðan á sýningu stóð og fá þær Rebekka, Dagný og Hrafntinna sérstakar þakkir frá leikhópnum.

Til þess að geta sett upp svona sýningu þarf mikla hjálp frá samfélaginu innan og utan skólans. Þetta árið vorum við svo heppin að fá auglýsingastyrki frá fyrirtækjum ásamt þess að margir gáfu af tíma sínum og/eða hjálpuðu til við að finna búninga og leikmuni fyrir okkur. 

fleiri myndir hér.