Árshátíð Stapaskóla

Árshátíð Stapaskóla fór fram í dag við mikinn fögnuð og eftirvæntingu. Nemendur í öllum bekkjum, frá 1. og upp í 10. bekk, sýndu einstaklega flott og metnaðarfull atriði sem vöktu mikla lukku hjá viðstöddum áhorfendum.

Dagskráin hófst á því að nemendur í  5. bekk settu á svið magnað opnunaratriði byggt á sögunni um Bláa hnöttinn. Þar á eftir tók 1. til 4. bekkur við með sameinuðu glæsilegu Grease-atriði þar sem söngur og dans voru í fyrirrúmi og Nemendur í 6. bekk sýndu bráðskemmtilegt leikrit um lífið í sínum bekk. Eldri nemendurnir stóðu sig einnig frábærlega. 

7. bekkur var með fjörugt dans- og leiklistaratriði og 8. bekkur sýndi kraftmikið „halftimeshow“ þar sem dansinn réð ríkjum, 9. bekkur gladdi gesti með leikriti um skólalífið. Loks steig 10. bekkur á svið með stórglæsilegt atriði sem var innblásið af Barbie-kvikmyndinni.

Við viljum þakka foreldrafélaginu sérstaklega fyrir dýrindis veitingar sem boðið var upp á fyrir gesti og gangandi eftir sýningarnar.