Árshátíð Stapaskóla

Árshátíð Stapaskóla verður haldin hátíðleg í íþróttahúsi skólans föstudaginn 27. mars næstkomandi. Þar sem hver árgangur mun vera með sitt eigið skemmtiatriði. Þennan dag mæta nemendur í sína tvennd kl. 9:45 en dagskrá hefst í íþróttasal skólans kl. 10:00. Nemendur sitja með sínum árgangi og kennurum á meðan skemmtidagskrá stendur.

Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir að koma og njóta með okkur. Að skemmtidagskrá lokinni eru nemendur í umsjón foreldra/forráðamanna og býður foreldrafélag Stapaskóla uppá köku, kaffi og djús á göngum skólans.

Athugið að nemendur koma ekki með síma á árshátíðina þar sem notkun síma og myndataka nemenda er ekki leyfð.

Árshátíðardagurinn er skertur skóladagur og er frístund lokuð.

Við hlökkum til að sjá sem flesta og eiga skemmtilega stund saman!