- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Í dag, föstudaginn 20. mars fögnuðu nemendur Stapaskóla þeirri staðreynd að í dag er alþjóðadagur hamingjunnar.
Alla vikuna hafa nemendur á leik- og grunnskólastigi unnið með spurninguna: Hvað þarf til svo allir séu hamingjusamir? Þegar hver aldurshópur fyrir sig hafði fundið sameiginlegt svar var það ritað á stóran striga. Nemendur undirrituðu svo með fingrafari sínu.
Á deginum sjálfum hittumst við svo í söngstund. Leikskólastigið átti sína söngstund um morguninn og grunnskólastigið rétt eftir hádegi. Á sama tíma frumsýndum við svo alla sameiginlegu vinnuna okkar á striga og enduðum daginn á því að syngja lagið Elsku Heimur eftir Braga Valdimar Skúlason sem hefur verið valið UNESCO lag Reykjaness. Allir stóðu sig stórvel og það var virkilega gaman að enda daginn á slíkri hamingju sem söngur er.
Söngstund á grunnskólastigi: IMG_1729.MOV
Sögstund á leikskólastigi: MicrosoftTeams-video
Fleiri myndir má finna hér