Ævar vísindamaður í heimsókn á bókasafni Stapaskóla

Ævar vísindamaður kom í heimsókn á bókasafn Stapaskóla og las fyrir nemendur í 4., 5. og 6. bekk úr nýju bókinni sinni, Teiknimyndaránið. Bókin er virkilega skemmtileg og fyndin og nemendur nutu þess að hlusta á Ævar lesa úr henni með miklum leikburði.

Einn bekkur kom í einu og átti notalega stund á frábæra bókasafninu okkar. Nemendur sátu í hringnum og hlustuðu á upplesturinn. Að honum loknum fengu þeir tækifæri til að spyrja Ævar spjörunum úr.

Það var greinilegt að Ævar á marga aðdáendur í Stapaskóla, enda hefur hann skrifað margar skemmtilegar bækur sem nemendur hafa haft mikla ánægju af að lesa.

Í heimsókninni hitti Ævar einnig Ödu, ungan rithöfund í Stapaskóla. Hann hafði mikinn áhuga á að skoða bækurnar hennar og var afar ánægður með skrif hennar. Ævar mun fylgjast vel með henni í framtíðinni, rétt eins og við í Stapaskóla.

Við þökkum Ævari vísindamanni kærlega fyrir skemmtilega heimsókn og notalegar stundir með nemendum!