Útskrift 10. bekkjar

Fimmtudaginn 9. júní eru skólaslit við grunnskólastig Stapaskóla.

Í fyrsta skipti í sögu skólans er verið að útskrifa nemendur úr 10. bekk. Athöfnin hefst á sal skólans kl.13.00. Þar verða viðurkenningar veittar fyrir góðan árangur, hrósskjöl lesin upp og vitnisburður afhentur. Foreldrar og gestir eru hjartanlega velkomnir og í lokin er boðið uppá kaffiveitingar.