List fyrir alla - Ævintýrið um ferðafljóð

Í dag, föstudaginn 13. október fengu nemendur í 1. – 3. bekk heimsókn frá List fyrir alla. Hlutverk List fyrir alla er að velja og miðla listviðburðum um allt land og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum. Að þessu sinni eru það listafólkið Valgerður Guðnadóttir (söngkona og leikari), Sigurður Helgi Oddsson (pianóleikur) og Matthías Stefánsson (fiðlu- og gítarleikur). Þau sýndu leikþáttinn Ævintýrið um Ferðaljóð en það segir frá lítilli stúlku sem vaknar upp í torfbænum sínum við undarlegt hljóð. Henni opnast leið inn í ævintýraheim og fer í háskalegt ferðalag á baki Fugls. Hún þarf að bjarga fólki í neyð vítt og breytt um heiminn. Hún kemst að því að hún hefur ofurkrafta sem er röddin hennar og leysir þrautir með röddina að vopni. Alls kyns furðuverur koma við sögu svo sem illir álfkarlar, fenjadísir og fleiri fyrirbæri. Tónlistin er blanda af þjóðlögum og þekktum sönglögum frá ýmsum löndum. Áhorfendur fara í spennandi ævintýraleiðangur með Ferðafljóði og fugli og kynnast í leiðinni allskyns skemmtilegri tónlist.

Við þökkum List fyrir alla fyrir frábæra skemmtun.