VOLT verkefnið gefur út heimildamynd

Eftir þrotlausa vinnu í hartnær tvö ár héldu nemendur upp á það að VOLT verkefnið (e. Volcanoes as teacher) væri að líða undir lok. Partur af verkefninu var að taka upp myndbönd og kortleggja lærdómsferli okkar er kemur að eldfjöllum og eldfjallasvæðum. Myndböndin eru samansafn af þeim ferðum sem farið var í en partur af nemendum fór til Grikklands annars vegar og Ítalíu hins vegar. Við sjálf sem heild tókum á móti ferðahópum til okkar í maí 2025 og sýndum Reykjanesið með öllum þeim undrum sem þar er að finna.

Til að halda upp á þessi lok var 8. Bekk og forráðamönnum boðið á forsýningu þriðjudagskvöldið 25. febrúar. Hópurinn hittist og gæddi sér á pizzu áður en haldið var inn í tvennd til að horfa á heimildamyndina.

Miðvikudaginn 25. febrúar settust svo 6. og 7. bekkur saman í fjölnotasal skólans og horfði á heimildamyndina á sama tíma með nemendum víðs vegar að, meðal annars frá Ítalíu, Grikklandi, Króatíu og Finnlandi.

Það var virkilega gaman að horfa á ferlið og voru nemendur áhugasamir og flottir.

Við þökkum fyrir frábært lærdómssamfélag og það tækifæri að taka þátt í jafn viðamiklu verkefni og Erasmus+.

Myndir af forsýningu og myndir af frumsýningu má sjá hér.

Hlekkur til að horfa á heimildamyndina: VOLT ICE subs.mp4