Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar var haldin á sal Stapaskóla þriðjudaginn 24. febrúar. Keppnin er árlegur viðburður í starfi skólans. Nemendur í 7. bekk hefja formlegan undirbúning fyrir upplestur á Degi íslenskrar tungu og eru hvattir til að lesa og æfa sig í vönduðum upplestri með það að markmiði að taka þátt í keppninni sem haldin er ár hvert. Í ár voru átta nemendur sem unnu sér rétt til þátttöku í skólakeppninni eftir bekkjarkeppni sem fram fór í síðustu viku. 

Þeir nemendur sem unnu sér rétt til þátttöku í skólakeppninni voru: 

  • Anna Lísa Torfadóttir 

  • Elsa Lind Pálsdóttir 

  • Guðbjartur Agnarsson 

  • Hafsteinn Leó Sævarsson 

  • Heiða Lind Hermannsdóttir 

  • María Dís Jónsdóttir 

  • Ólafía Arndís Björnsdóttir 

  • Tinna Rut Sigvaldsdóttir 

Keppnin tókst einstaklega vel og voru nemendur mjög vel undirbúnir. 

Dómarar keppninnar í ár voru: 
Brynhildur Sigurðardóttir, sem starfaði áður hjá okkur í Stapaskóla sem umsjónarkennari en starfar nú sem sérfræðingur við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu; Katrín Jóna Ólafsdóttir, deildarstjóri í Akurskóla; og Katrín Alda Ingadóttir, fyrrum nemandi í Stapaskóla og keppandi sem fór fyrir hönd skólans í Hljómahöll árið 2021. 

Sigurvegarar keppninnar fá keppnisrétt á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fer fram í Hljómahöll 10. mars nk. 
Sigurvegarar voru þær María Dís Jónsdóttir og Heiða Lind Hermannsdóttir. Auk þeirra var Hafsteinn Leó Sævarsson valinn varamaður. Þau munu öll halda áfram æfingum og undirbúa sig fyrir lokakeppnina.