Námsgögn í tösku

Kæru foreldrar/forráðamenn,

Staðan varðandi skólahald eftir helgina er óljós þegar þetta er skrifað.

Við í Stapaskóla ákváðum að senda nemendur með námsgögn heim í dag.

Þegar þetta er ritað á eftir að móta sérreglur varðandi leik- og grunnskóla, hlutirnir gerast hratt en við munum senda ykkur nánari upplýsingar og leiðbeiningar um leið og við vitum meira.

Kær kveðja,

Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla