Stöðu- og framvindupróf MMS kynnt fyrir nemendum

Núna í marsmánuði munu nemendur í 4.-10. bekk þreyta stöðupróf í lesskilningi og stærðfræði. Er þetta liður að því að auka gagnsæi á stöðu barnanna okkar og finna hvar við getum best aðstoðað þau svo gagn sé af. Foreldrar hafa fengið formlegan kynningarpóst frá MMS þess efnis. 

Ekki er nauðsynlegt að undirbúa sig sérstaklega fyrir þessi próf, enda eru þau sett upp til að gefa raunverulega sýn á stöðu hvers og eins svo hægt sé að miða námið betur að hópnum okkar.  

Þetta ferli er í gangi í fyrsta sinn og því munum við án efa læra helling af þessu. Þess vegna er mikilvægt að við stígum í takt og minnum börnin okkar á að þetta er ekki einhver dómur heldur leið til að styðja hvert þeirra eftir bestu getu. 

Nú í vikunni munu börnin fá kynningu á þessum stöðuprófum og reglunum sem fylgja þegar þau þreyta þau. Við deilum þeim kynningum sem þau fá svo allir geti átt möguleika á að fara yfir þær og taka samtalið heima. 

Sömu upplýsingar í vefformi en einungis á íslensku: https://stapaskoli.my.canva.site/matsferillnemendur  

Til að auka öryggi allra á þessum prófum og útliti þeirra hvetjum við alla til að prófa sýniprófin og kynnast þannig útliti og uppsetningu. Sýniprófin má finna hér: Sýnispróf | TAO