BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ er haldin 2. maí til 11. maí 2025. Á hátíðinni eru börn, ungmenni og fjölskyldur settar í forgang með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti.
Markmið hátíðarinnar eru meðal annars þau:
Að auka lífsgæði og vellíðan barna og íbúa Reykjanesbæjar
Að skapa vettvang fyrir börn og fjölskyldur til virkrar þátttöku í samfélaginu
Öll börn í leikskólum og í 1. - 7. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar fá BAUNabréfið afhent í skólanum sínum!
Hér er stutt myndband sem fjallar um BAUNabréfið sem börnin ykkar fá með sér heim í dag. Svo mælum við með að allir fari í Listasafn Reykjanesbæjar, DUUS, og skoði sýninguna sem börnin ykkar tóku þátt í að skapa.
Góða skemmtun á BAUN.