Fullveldisdagurinn

Fullveldisdagurinn er svo nefndur til minningar um að þann 1. desember 1918 tóku gildi milli Íslands og Danmerkur Sambandslögin. Í þeim kom meðal annars fram viðurkenning Danmerkur á því að Ísland væri fullvalda og frjálst ríki. Íslenski fáninn var dreginn að húni í fyrsta sinn sem fullgildur þjóðfáni þennan dag.