- 15 stk.
- 12.12.2022
Nú í desember hafa nemendur í 3. og 6. bekk tekið höndum saman og safnað pening fyrir SOS Barnaþorpin í stað þess að gefa jólagjafir sín á milli á litlu jólunum. Rakel Lind, fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS barnaþorpanna kom í heimsókn og spjallaði við nemendur í dag og að lokum tók hún svo við styrknum frá nemendum. Við erum afar stolt af hugulsemi og hjartahlýju nemendanna sem er í anda jólanna