Alþjóðlegi bangsadagurinn - Leikskólastig

Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október ár hvert og í ár lendir hann á fimmtudegi. Þann dag mega nemendur á leikskólastigi koma með bangsa með sér í leikskólann.

Bangsadagurinn fellur ár hvert á fæðingardag Theodore „Teddy“ Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og er hann haldinn hátíðlegur víða um heim. Roosevelt var mikil skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á veiðum hafi hann vorkennt litlum varnalausum bjarnahúni og sleppt honum. Washington Post birti skopmynd af þessum atviki.

Búðareigandi einn í Brooklyn í New York varð svo hrifin af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði í höfuðið á Teddy eða Teddy Bear. Nú er þessi leikfangabangsi orðin vinsæll leikfélagi barna um allan heim og er hann í aðalhlutverki þegar alþjóðlegi bangsadagurinn rennur upp.