Árshátíð Stapaskóla 2024

Árshátíð Stapaskóla verður haldin hátíðleg á sal skólans þriðjudaginn 23. apríl og miðvikudaginn 24. apríl næstkomandi. 

Foreldrum og forráðamönnum er boðið að koma njóta með okkur.

Tímasetningar:

Þriðjudaginn 23. apríl.

7. - 10. bekkur - Dagskrá hefst kl. 20:00 - húsið opnar 19:30.

Að skemmtidagskrá lokinni hefst ball fyrir nemendur Stapaskóla, frá klukkan 21:00 23:00.Nemendur fá leyfi frá kennslu miðvikudaginnn 24. apríl.

Miðvikudaginn 24. apríl.

1. - 3. bekkur - Dagskrá hefst kl. 09:00 - nemendur mæta í sína tvennd 15 mínútum áður.

4. - 6. bekkur - Dagskrá hefst kl. 10:30 - nemendur mæta í sína tvennd 15 mínútum áður.

Nemendur sitja með sínum árgangi og kennurum á meðan skemmtidagskrá stendur. Að skemmtidagskrá lokinni eru börn í umsjá foreldra/forráðamanna. 

Árshátíðardagurinn er skertur skóladagur og er frístund lokuð.

Fimmtudaginn 25. apríl er sumardagurinn fyrsti og föstudaginn 26. apríl er starfsdagur, eru nemendur því komnir í langt helgarleyfi að lokinni árshátíð.