Dagur leikskólans

Sjötti febrúar er merkilegur dagur í sögu leikskólans því það var á þessum degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á hlutverki leikskóla og starfi leikskólakennara og mikilvæg leið til að minna á málefni yngstu barnanna í samfélaginu og gera það á jákvæðum nótum.

Við bjóðum góðan dag alla daga!