Skólaslit og útskrift 10. bekkjar 2023
- 35 stk.
- 14.06.2023
Skólaslit og útskrift 10. bekkjar fór fram dagana 7. og 8. júní við hátíðlega athöfn á sal skólans og inni í tvenndum nemenda.
Skoða myndirSkólaslit og útskrift 10. bekkjar fór fram dagana 7. og 8. júní við hátíðlega athöfn á sal skólans og inni í tvenndum nemenda.
Skoða myndirMiðvikudagurinn 31. maí var stór dagur hjá elstu börnum leikskólastigs Stapaskóla en þann dag útskrifuðust þau við hátíðlega athöfn í fjölnotasal skólans. Við óskum útskriftarnemendum okkar og aðstandendum þeirra innilega til hamingju með áfangann.
Skoða myndirSamgöngustofa heldur úti umferðarskóla fyrir elsta hóp leikskólabarna. Í umferðarskólanum er m.a. fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig fara eigi yfir götu, hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti. Leikskólar sjá nú um umferðarskólann sjálfir í samvinnu við Samgöngustofu. Í þessari viku fengu börnin á Óskasteini umferðafræðslu en í henni má sjá innipúkann og krakkana úr Kátugötu bregða fyrir sem nemendur þekkja úr bókunum sem sendar eru heim til allra barna á aldrinum 3-6 ára.
Skoða myndirFöstudaginn 19. maí fór fram íþróttadagur Stapaskóla. Þar keppa árgangar sín á milli um stapabikarinn. Keppt er í 12 greinum t.d. púsl, bandý, pokahlaup, boðhlaup, negla nagla og fl.
Skoða myndirSunnudagurinn 30. apríl er Stóri plokkdagurinn. Í tilefni þess fóru nemendur í 2. bekk saman út og skoðuðu skólalóðina með augum náttúrunnar. Á sama tíma safnaði hópurinn öllu rusli sem þau fundu. Þau greindu tegundir ruslins niður eftir flokkunarreglum sem þau leituðu eftir á vefnum og flokkuðu allt samviskusamlega.
Skoða myndirSkólaskákmót á vegum Skáksambands Íslands var haldið í Stapaskóla 19. apríl. 180 krakkar úr grunnskólum á Suðurnesjum kepptu í þremur aldursflokkum á þessu glæsilega stórmóti.
Skoða myndirBrunavarnir Suðurnesja heimsækir árlega elstu börnin á leikskólum á þjónustusvæðinu til að fræða þau og fjölskyldur þeirra um eldvarnir. Slökkviliðsmenn hafa Loga og Glóð sér til halds og trausts í þessum heimsóknum, en þau eru aðstoðarmenn slökkviliðsins í þessu verkefni. Einnig fá börnin í hendurnar möppur sem í er ýmislegt er tengist brunavörnum auk skemmtilegra verkefna og einfaldra ráðleggingar til foreldra og forráðamanna um öryggi heimilisins.
Skoða myndirÖskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Stapaskóla. Nemendur og starfsfólk mættu í hinum ýmsu búningum og var fjölbreytni í búningavali mikil.
Skoða myndirVið á leikskólastigi Stapaskóla héldum upp á konudaginn sl. mánudag en hann er fyrsti dagur mánaðarins Góu í gamla norræna tímatalinu. Sú hefð er að menn gefi konum blóm í tilefni konudagsins þannig að börnin voru búin að búa til blóm til að gefa mömmu eða ömmu.
Skoða myndirTilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 4201600 eða í gegnum Mentor