- 25 stk.
- 11.11.2022
Þemadagar voru haldnir í Stapaskóla 9.-11. nóvember sem endaði með glæsilegri þemasýningu. Þemað að þessu sinni var “Allt um heilsuna”. Í 7.-10. bekk var unnið með heilastöðvarnar þar sem farið var yfir hvernig helstu stöðvarnar vinna og hvernig við getum unnið okkur úr festuhugarfari yfir í vaxandi hugarfar. Einnig var unnið með jól í skókassa verkefnið þar sem allur skólinn lagðist á eitt og safnaði í skókassagjafir sem nemendur pökkuðu svo inn.