- 55 stk.
- 11.11.2022
Þemadagar voru haldnir í Stapaskóla 9.-11. nóvember sem endaði með glæsilegri þemasýningu. Þemað að þessu sinni var “Allt um heilsuna”. Nemendur á yngra og miðstigi, 1. til 6. bekk, unnu að fjölbreyttum verkefnum sem snéru að heilsu og hugarfrelsi. Á stöðvunum var unnið með styrkleika, fyrirmyndir, þakklæti, vináttu, fæðuhringinn, slökun, jóga og leiki.