    <language>is</language>
Stapaskóli 
Vetrarfrí í Stapaskóla 23. og 26. október
Föstudaginn 23. október og mánudaginn 26. október er vetrarfrí í Stapaskóla.
Leik- og grunnskólastarf verður ekki þessa daga og frístundaheimilið Stapaskjól verður einnig lokað.
Starf á leik- og grunnskólastigi hefst aftur þriðjudaginn 27. október.
Við óskum nemendum, foreldrum og starfsfólki góðra og notalegra daga í vetrarfríinu.]]></description>
Slæm veðurspá fyrir miðvikudaginn 14. október
Veðurstofa Íslands hefur varað við slæmu veðri víða um land á morgun, miðvikudaginn 14. október. Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að fylgjast vel með veðurspám og viðvörunum og gera ráðstafanir eftir aðstæðum.
Foreldrar eru sérstaklega hvatti...]]></description>
Nýr snjallsjónauki í Stapaskóla
Stapaskóli hefur fengið að gjöf nýjan snjallsjónauka sem mun nýtast í fjölbreyttu og spennandi námi um náttúru, vísindi og undur alheimsins.
Sjónaukinn er hluti af verkefni Reykjanes jarðvangs þar sem ellefu snjallsjónaukar eru afhentir grunnskólum ...]]></description>
Ævar vísindamaður í heimsókn á bókasafni Stapaskóla
Ævar vísindamaður kom í heimsókn á bókasafn Stapaskóla og las fyrir nemendur í 4., 5. og 6. bekk úr nýju bókinni sinni, Teiknimyndaránið. Bókin er virkilega skemmtileg og fyndin og nemendur nutu þess að hlusta á Ævar lesa úr henni með miklum leikburð...]]></description>
Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
Haldið var upp á fánadag heimsmarkmiðanna í Stapaskóla með því að draga fána heimsmarkmiðanna að húni. Nemendur allt frá leikskólastigi upp í 10. bekk gengu í verkið, eins og má sjá á meðfylgjandi myndum. Dagurinn markar upphaf sjálfbærnistarfs skóla...]]></description>
Samskiptadagur 1. október
Fimmtudaginn 1. október verður samskiptadagur í Stapaskóla. Þá mæta nemendur ásamt foreldrum sínum í viðtal hjá umsjónarkennara þar sem rætt verður um líðan, nám og framvindu náms.
Þennan dag er ekki hefðbundinn skóladagur og nemendur mæta því aðein...]]></description>
Starfsdagur á leik- og grunnskólastigi
Föstudaginn 11. september er starfsdagur í Stapaskóla, á leik- og grunnskólastigi. Allir nemendur eiga frí þennan dag.
Frístundaheimilið Stapaskjól er einnig lokað.]]></description>
Vatnslaust á morgun þriðjudag
Miðvikudaginn 9. september (á morgun) verður lokað fyrir heitt vatn í Innri-Njarðvík frá kl. 08:00. Gera má ráð fyrir að lokun vari í 5-7 klst.
Göngum í skólann
Stapaskóli tekur þátt í verkefninu Göngum í skólann sem hefst miðvikudaginn 9. september og stendur til 30. september.
Markmið verkefnisins er að hvetja nemendur og fjölskyldur þeirra til að velja virkan ferðamáta í og úr skóla þegar aðstæður leyfa....]]></description>
Treyjudagurinn 4. september
Föstudaginn 4. september verður Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Á Treyjudeginum eru nemendur og starfsfólk hvött til að mæta í sinni uppáhalds íþróttatreyju í skólann og sýna ...]]></description>
Skemmtilegur skógræktardagur á Njarðvíkurheiði 🌱🌳
Nemendur í 3. og 6. bekk tóku þátt í skemmtilegum skógræktarviðburði á Njarðvíkurheiði þar sem þau fengu tækifæri til að gróðursetja tré og taka þátt í uppbyggingu svæðisins.
Dagurinn var bæði fræðandi og skemmtilegur. Nemendur fengu fræðslu um skóg...]]></description>
Námfús – nýtt námsumsjónarkerfi í Stapaskóla
Á þessu skólaári tekur Stapaskóli í notkun Námfús, nýtt námsumsjónarkerfi sem tekur við af InfoMentor. Námfús verður sameiginlegur vettvangur fyrir upplýsingar um skólastarfið og samskipti milli heimila og skóla.
Innleiðing nýs kerfis tekur tíma og ...]]></description>
Skólasetning 2026-2027
Skólasetning fer fram þriðjudaginn 25. ágúst nk. í íþróttasal við Stapaskóla.
Forráðamönnum er velkomið að fylgja sínum börnum á skólasetninguna.
Kl. 09:00 - 3., 5., 7. og 9. bekkur.
Kl. 10:00 - 2., 4., 6., 8. og 10. bekkur.
Kl. 11:00 - 1. bekkur...]]></description>
Skólabyrjun grunnskóla í Reykjanesbæ
Nú líður senn að því að nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar hefji störf. Þriðjudaginn 25. ágúst eru skólasetningar en nánari upplýsingar fyrir hvern skóla eru birtar á heimasíðum þeirra. 301 fyrstu bekkingar eru nú að hefja grunnskólanám og taka sín f...]]></description>
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir tekur við sem skólastjóri Stapaskóla
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir hefur verið ráðin skólastjóri Stapaskóla og tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi.
Hólmfríður er með B.Ed., M.Ed. í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur jafnframt lokið Dipl.Ed. í námi og kennslu ungr...]]></description>
Sjálfsmatsskýrsla Stapaskóla 2025–2026
Sjálfsmatsskýrsla Stapaskóla fyrir skólaárið 2025–2026 hefur verið birt og er nú aðgengileg á heimasíðu skólans.
Sjálfsmat er mikilvægur þáttur í að efla gæði skólastarfs og styðja við markvissa þróun og umbætur. Í skýrslunni eru dregnar saman helst...]]></description>
Sumarfrí á skrifstofu og leikskólastigi
Nú þegar sumarfrí grunnskólanemenda er hafið viljum við upplýsa um sumarlokun og opnunartíma skrifstofu og leikskólastigs Stapaskóla.
Skrifstofa skólans fer í sumarfrí eftir kl. 12:00 föstudaginn 19. júní og opnar aftur fimmtudaginn 6. ágúst kl. 10:...]]></description>
Menningarmót í Stapaskóla
Við í Stapaskóla héldum glæsilegt menningarmót þriðjudaginn 9. júní í framhaldi af þemadögum skólans. Menningarmótið var bæði skemmtilegt og lærdómsríkt og markaði skemmtilegan lokapunkt á vinnu nemenda. Nemendur unnu af miklum metnaði að verkefnum sínum og það var einstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreyttur, skapandi og persónulegur afraksturinn var.
Á menningarmótinu fengu nemendur tækifæri til að kynna verkefni sín og sýna minningarkassana sína. Þar sögðu þeir frá minningum, upplifunum og því sem skiptir þá máli. Það var virkilega gaman að fylgjast með hversu öruggir og stoltir nemendur voru þegar þeir kynntu verk sín fyrir gestum.
Stemningin á mótinu var frábær og gleðin skein úr hverju andliti. Nemendur sýndu mikla sköpunargáfu, frumkvæði og samvinnu og það var ánægjulegt að sjá hvernig þeir studdu hvert annað og fögnuðu árangri samnemenda sinna.
Við erum ótrúlega stolt af öllum nemendunum okkar og afar ánægð með útkomuna. Menningarmótið var vel heppnað og endurspeglaði þann metnað, dugnað og jákvæða anda sem ríkir í Stapaskóla.
Við viljum færa starfsfólki Stapaskóla og foreldrum nemenda Stapaskóla innilegar þakkir fyrir allan þann stuðning, samstarf og aðstoð sem þau veittu. Án þeirra hefði þessi dagur ekki orðið jafn vel heppnaður og raun bar vitni.
Takk fyrir samveruna og þátttökuna. Við eigum margar góðar minningar frá þessum skemmtilega degi.]]></description>
Skólaslit og útskrift 10. bekkjar í Stapaskóla
Í gær, 10. júní, fóru fram skólaslit Stapaskóla og útskrift 10. bekkjar við hátíðlegar athafnir þar sem nemendur, foreldrar, forráðamenn og starfsfólk komu saman til að fagna lokum farsæls skólaárs.
Í ávarpi skólastjóra var meðal annars komið inn á ...]]></description>
Ungur rithöfundur í Stapaskóla
Ada Hafliðadóttir er 15 ára nemandi í Stapaskóla og hefur verið hjá okkur alla sína skólagöngu. Hún hefur sýnt einstakan metnað og sköpunargáfu á undanförnu skólaári og náð eftirtektarverðum árangri sem ungur rithöfundur. Við erum afar stolt af henni og því sem hún hefur áorkað.
Síðastliðin ár hefur Ada unnið markvisst að ritstörfum og hefur nú þegar skrifað þrjár bækur á ensku. Bækurnar eru hluti af seríu sem ber heitin Solved by You, Consumed by You og Hidden by You. Einnig hefur hún þýtt eina bókanna yfir á íslensku til að taka þátt í sögusamkeppni.
Þýðing hennar vakti verðskuldaða athygli og var bókin valin meðal þriggja efstu í Storytel keppni, sem er glæsilegur árangur og vitnisburður um hæfileika hennar og dugnað.
Bækurnar eru fáanlegar á Amazon, bæði í prentuðu formi og sem Kindle-bækur. Fyrsta bókin fjallar um nútímavandamál sem geta komið upp innan vinahóps, en hinar tvær taka við þar sem frá var horfið og fylgja persónunum áfram í spennandi og skemmtilegum atburðum.
Ada er þegar farin að huga að næsta verkefni og við erum spennt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Með þann metnað, sköpunargleði og dugnað sem hún hefur sýnt hingað til er ljóst að hún á bjarta framtíð fram undan.]]></description>